12. jan. 2011

Rok, vindur og innblástur

Svo ég sé hreinskilin - þá hef ég hamast síðustu vikurnar, seint að sofa o.s.frv... kannski kannast einhver við það? Bara get ekki með nokkru móti skilið óvild þessarar klukku og hún er svo sannarlega ekki besti vinur minn á morgnanna, það þýðir lítið að skæla yfir því.
En úti er rokið og ég sit og fæ innblástur, það er ógrynni af myndum, litum, formum, tónar, andstæður, menningarheimar, flötur mætir fleti, sundurgreining, samsetning, orð, hugsanir, fortíðarþrá, rómantík, einfaldleiki og klassík. Það er ævintýralega gaman að fá hugmyndir.

Heil ný vefsíða er í mótun - það tekur líka tíma. Hugmyndafræði hennar er að vera söluvettvangur fyrir handverksfólk sem vinnur með þráð, en skilyrðið er eigin hönnun og gott handbragð. En eins og ég sagði þá er hún en í mótun og verður vel kynnt þegar að því kemur. Læt ykkur pottþétt vita.

En svo maður hafi nú eitthvað gaman af þessu þá set ég nú inn nokkrar myndir

Uppskrift af þessari er tilsölu.


Uppskrift af þessum skokk er til sölu.



þessi skokkur er til sölu sjálfur, kostar 4500,-. Hann er fyrir pínupons stúlkur, svona c.a. 2-4 mán.

þessi skokkur er til sölu á 4500,- og er á 6-12 mán

og uppskrift af þessari peysu til sölu, 2ja, 4ra og 6 ára.


og þessi líka fyrir 8, 10 og 12 ára.

já.. sko þessa er hægt að panta, stærð 74 og kostar 4500,-


jæja- nóg komið af þessu sölurugli ..
bestu og gleðilegustu prjónakveðjur
Vilborg

3 ummæli:

prjonaperlur sagði...

Æðislega skemmtilegt prjón... :-)
Finnst síðasta stykkið - brúna kápupeysan hryllilega krúttleg og sæt... og hippó.

Prjónakveðjur,
Halldóra.

Fanney Sif. sagði...

Hæ hæ langar að kaupa hjá þér uppskriftina af skokknum á mynd nr 2
hverning senduru hana?
kv
Fanney
johannshus@simnet.is

Þórunn sagði...

gaman verður að fylgjast með nýju síðunni, hlakka bara til að fá að sjá meira ;)
Kær kveðja
Þórunn